Fannar Freyr Ívarsson er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi. Hann er með LL.M. gráðu frá University of California, Berkeley. Fannar er sérfræðingur í félaga- og fjármunarétti og með víðtæka reynslu á því sviði. Í störfum sínum hefur hann sérhæft sig í hvers konar fjármögnun fyrirtækja og veitir fjármálafyrirtækjum og öðrum félögum ráðgjöf er varðar fjárfestingar og lántökur hvers konar. Fannar er hluti af banka- og fjármögnunarteymi LOGOS. Fannar hefur einnig aflað sér víðtækrar þekkingar og reynslu af vísisfjárfestingum (e. venture capital) og áskorunum sem félög í örum vexti standa frammi fyrir. Hann veitir slíkum félögum, vísissjóðum og öðrum þátttakendum í nýsköpunarumhverfinu margs konar lögfræðilega ráðgjöf. Hefur Fannar einnig umtalsverða þekkingu á álitaefnum er varða fjártækni (e. fintech) og veitir iðulega ráðgjöf á því sviði. Þá er Fannar sérfræðingur í flugrétti og málum er varða kaup, sölu og leigu flugvéla og sinnir reglulega ráðgjöf til flugfélaga og eigenda flugvéla, innlendra sem erlendra, í tengslum við slík viðskipti. Fannar hóf störf hjá LOGOS árið 2010 og varð meðeigandi árið 2023.
- LOGOS lögmannsþjónusta, 2010-
- Síminn hf., 2009-2010
- Tollstjórinn í Reykjavík, 2008-2009
- UC Berkeley School of Law, LL.M., Fulbright styrkþegi, 2018
- Héraðsdómslögmaður, 2014
- Háskóli Íslands, mag. jur., 2012
- Kaupmannahafnarháskóli, Nordplus styrkþegi, 2011
- Háskóli Íslands BA í lögfræði, 2010