Commercial Agents in Europe, Eversheds country by country bæklingur, Ísland bls. 25.
Sjá hér.
LOGOS fær toppeinkunn hjá Chambers and Partners
Ensku fyrirtækin Chambers and Partners og The Legal 500 hafa metið LOGOS í fremstu röð lögfræðiráðgjafa á Íslandi. Einnig voru ýmsir lögmenn hjá LOGOS taldir skara framúr á sínum sviðum. Í þessu er fólgin mikil viðurkenning fyrir LOGOS þar sem bæði Chambers og The Legal 500 eru alþjóðleg fyrirtæki sem sérhæfa sig í mati á gæðum lögfræðiþjónustu.
Matið fer m.a. fram með viðtölum við viðskiptavini lögfræðinga. Það sem hefur áhrif á niðurstöðu matsins eru þættir eins og fagmennska, tæknileg geta, þjónusta við viðskiptavini, áreiðanleiki og viðbragðsflýtir, auk þeirra þátta sem viðskiptavinir telja skipta mestu máli við góða lögfræðiþjónustu.
Sjá nánar hér og hér.

Nýr eigandi í London
Þann 1. mars sl. bættist Hafliði Kristján Lárusson í hóp eigenda á skrifstofu LOGOS í London.
Hafliði hefur unnið á skrifstofu LOGOS í London síðan árið 2007 og tekið virkan þátt í að byggja þar upp öflugt starf.
Hafliði er útskrifaður með D.S.U. frá Université Panthéon-Assas 1996, D.E.S.S. frá University of Toulouse 1997, M.A. frá University of Western Ontario 1999, og LL.M. gráðu frá Nottingham Trent University 2007. Hann er einnig með diploma frá The College of Law, England 2001 og Nottingham Law School 2006. Hafliði starfaði hjá bandarísku lögmannsstofunni White & Case í London frá 2002 þar til hann gekk til liðs við LOGOS árið 2007. Hafliði hefur verið stundakennari við Háskólann í Reykjavík frá árinu 2007. Hann er fulltrúi Íslands í gerðardómi Alþjóða viðskiptaráðsins í París síðan í júlí 2009.
LOGOS lögmannsþjónusta aðstoðar við 1,6 milljarða evra fjárhagslega endurskipulagningu Hf. Eimskipafélags Íslands
Á kröfuhafafundi í Hf. Eimskipafélagi Íslands þann 14. ágúst var nauðasamningsfrumvarp félagsins samþykkt samhljóða af öllum kröfuhöfum félagsins. Í dag þann 28. ágúst var háð þinghald í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem nauðasamningurinn var samþykktur.Frá því í október 2008 hefur hópur lögmanna
LOGOS undir forystu Ólafs Arnbjarnar Sigurðssonar, Ólafs Eiríkssonar og Péturs Guðmundarsonar verið Eimskipafélaginu innan handar við undirbúning fjárhagslegrar endurskipulagningar félagsins.
Lesa alla greinina.
Hádegisverðarfundur mánudaginn 7. september 2009
Some Thoughts on the Causes of the 2008 Financial Crisis
(From the Perspective of a UK Investment Banker Who Saw it Unfold)
Fundurinn hefst með hádegisverði á Nordica Hóteli, annari hæð, kl. 12:00 mánudaginn 7. september en áætlað er að honum ljúki kl. 13:30
Jas Bains will give a short presentation of the underlying causes of the 2008 Financial Crisis seen from his view as a banker at Barclays Capital in London. Barclays Capital was and remains a global market leader in structured products.
Jas Bains is a Solicitor in England and Wales at LOGOS Legal Services in London. Jas is a Cambridge University graduate and trained and qualified as a solicitor at Freshfields Bruckhaus Deringer in London. After 4 years at Freshfields, Jas joined ING Bank, London and later Barclays Capital, London where he worked in the Structured Capital Markets team. Jas joined LOGOS in London early 2009 and leads the firm’s UK qualified team on Banking and Finance Law as well as Restructuring.
LOGOS fær toppeinkunn hjá Chambers & Partners
Enska fyrirtækið Chambers and Partners hefur metið LOGOS í fremstu röð lögfræðiráðgjafa á öllum þeim sviðum sem metin voru á Íslandi. Einnig voru ýmsir lögmenn hjá LOGOS taldir skara framúr á sínum sviðum. Í þessu er fólgin mikil viðurkenning fyrir LOGOS þar sem Chambers er alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í mati á gæðum lögfræðiþjónustu.
Matið fer m.a. fram með viðtölum við viðskiptavini lögfræðinga. Það sem hefur áhrif á niðurstöðu matsins eru þættir eins og fagmennska, tæknileg geta, þjónusta við viðskiptavini, áreiðanleiki og viðbragðsflýtir, auk þeirra þátta sem viðskiptavinir telja skipta mestu máli við góða lögfræðiþjónustu.
Móttaka í London
Þann 14. maí nk., mun íslenski sendiherrann í Bretlandi bjóða til móttöku í samstarfi við norrænar lögmannsstofur í London, LOGOS, Vinge, Kromann Reumert og Thommessen. Sjá nánar hér.
Fréttabréf LOGOS
Fréttabréf varðandi íslensku neyðarlögin.
Smellið hér til að lesa
LOGOS var í 2. - 3. sæti í hópi stærri fyrirtækja
VR fyrirmyndarfyrirtæki.

LOGOS fær toppeinkunn hjá Chambers og Partners
Enska fyrirtækið Chambers and Partners hefur metið LOGOS í fremstu röð lögfræðiráðgjafa á öllum þeim sviðum sem metin voru á Íslandi. Einnig voru ýmsir lögmenn hjá LOGOS taldir skara framúr á sínum sviðum. Í þessu er fólgin mikil viðurkenning fyrir LOGOS þar sem Chambers er alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í mati á gæðum lögfræðiþjónustu.
Matið fer m.a. fram með viðtölum við viðskiptavini lögfræðinga. Það sem hefur áhrif á niðurstöðu matsins eru þættir eins og fagmennska, tæknileg geta, þjónusta við viðskiptavini, áreiðanleiki og viðbragðsflýtir, auk þeirra þátta sem viðskiptavinir telja skipta mestu máli við góða lögfræðiþjónustu.
20.10.2008
IFLR mat LOGOS í fremstu röð lögmannsþjónusta á Íslandi.

LOGOS opnar skrifstofu í Kaupmannahöfn
Nú um áramótin bættist LOGOS liðsauki frá Danmörku, þegar að Peter Mollerup og Carsten Møllekilde gengu í sameignarfélagið LOGOS. Þeir hafa stundað lögmannsstörf í Danmörku um árabil og voru meðeigendur að Johan Schluter lögmannsstofu. Með þeim munu starfa á skrifstofunni í Kaupmannahöfn 3 lögmenn og 2 aðstoðarmenn til að byrja með. LOGOS í Kaupmannahöfn mun aðallega sinna fyrirtækjaþjónustu, með áherslu á fjárfestingarverkefni og fjármálagerninga.
Með stofnsetningu á útibúi í Danmörku brýtur LOGOS blað, því að Carsten og Peter eru fyrstu erlendu lögmennirnir sem eru meðeigendur að lögmannsstofu á Íslandi, auk þess sem LOGOS í Danmörku verður fyrsta danska lögmannsstofan sem er í eigu erlendrar lögmannsstofu.
Opnun í Kaupmannahöfn er þáttur í áframhaldandi þróun LOGOS sem lögfræðifyrirtækis, en markmiðið er að sinna sem best þörfum viðskiptavina stofunnar. Teljum við að starfsemi í Reykjavík, í Kaupmannahöfn og í London sé til þess fallin að mæta þörfum viðskiptavinanna, sem í vaxandi mæli hafa fært hluta af starfsemi sinni til Englands og Norðurlanda.
Starfsemin í Danmörku verður kynnt nánar á næstu vikum, m.a. með heimsóknum til viðskiptavina LOGOS.
Fréttabréf frá Lundúnum
Komið er út nýtt fréttabréf frá London og áætlað gefa út 2 tbl á ári til að byrja með.
Fréttabréf júní 2007 tbl. 2
LOGOS fær toppeinkunn hjá Chambers og Partners
Enska fyrirtækið Chambers and Partners hefur metið LOGOS í fremstu röð lögfræðiráðgjafa á öllum þeim sviðum sem metin voru á Íslandi. Einnig voru ýmsir lögmenn hjá LOGOS taldir skara framúr á sínum sviðum. Í þessu er fólgin mikil viðurkenning fyrir LOGOS þar sem Chambers er alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í mati á gæðum lögfræðiþjónustu. Matið fer m.a. fram með viðtölum við viðskiptavini lögfræðinga. Það sem hefur áhrif á niðurstöðu matsins eru þættir eins og fagmennska, tæknileg geta, þjónusta við viðskiptavini, áreiðanleiki og viðbragðsflýtir, auk þeirra þátta sem viðskiptavinir telja skipta mestu máli við góða lögfræðiþjónustu.

Móttaka í London
LOGOS stendur fyrir móttöku í London 24. maí nk. í samstarfi við skandinavísku lögmannsstofurnar Vinge, Kromann Reumert og Thommessen. Móttakan verður haldin í danska sendiráðinu á Sloane Street (sama hús og íslenska sendiráðið). Þeim sem hafa áhuga á að mæta er vinsamlegast bent á að senda tölvupóst á Katrínu Gunnarsdóttur ( katrin@logos.is ). Sjá nánar boðskort
Breytingar á eigendahópi
Ólafur Arinbjörn Sigurðsson hdl. gerðist meðeigandi að LOGOS sf. um áramótin. Ólafur Arinbjörn hefur starfað hjá LOGOS frá árinu 2003. Nánari upplýsingar um Ólaf er að finna hér.
Jakob R. Möller hrl. gekk úr sameignarfélaginu LOGOS sf. um áramótin. Jakob mun starfa áfram að tilteknum verkefnum, sem hann hefur þegar tekið að sér, þar á meðal dómsmálum sem honum hafa verið falin. Jakob mun jafnframt verða LOGOS til ráðgjafar í málefnum, sem varða LOGOS og viðskiptamenn félagsins. Málflutningsréttindi Jakobs eru óhögguð og lögmannsverkefnum sínum mun hann sinna undir merkjum LOGOS. Sjálfur orðar Jakob það svo, að hann "sé byrjaður að hætta störfum vegna aldurs" Nánari upplýsingar um Jakob er að finna hér.
World-shakers
"The lawyer reveals the 40 lawyers who have been making the biggest waves outside the UK" Guðmundur J. Oddsson hjá LOGOS er á meðal þeirra fjörtíu sem valdir voru.
Smellið hér til að sjá greinina.






